Félagaskráning Keflavíkur

Vertu Félagsmaður
Keflavíkur

Ungir sem aldnir, iðkendur, foreldrar, gamlar kempur og stuðningsfólkið í stúkunni. Skráðu þig, hafðu áhrif á framtíð félagsins og hjálpaðu okkur að byggja upp enn betri aðstöðu fyrir íþróttafólkið okkar.

4.000 kr.Árgjald, minna en ein pizza á ári
AllirGeta orðið félagsmenn, á öllum aldri
AblerEinföld skráning á örfáum mínútum
100%Fer aftur inn í starf félagsins

Markmiðið: 1.000 fyrir áramót

Við trúum því að sannir Keflvíkingar séu miklu fleiri en þúsund. Nú er tækifærið til að sýna það. Ert þú einn af þeim?

0 / 1.000
Skráðir félagsmenn0%

Af hverju að gerast félagsmaður?

Félagsaðild er meira en nafn á lista. Hún er leið til að styðja starfið, hafa rödd og vera hluti af Keflavíkurfjölskyldunni.

Atkvæðaréttur

Aðeins félagsmenn hafa atkvæðarétt á aðalfundum félagsins.

Kjörgengi

Félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnarsetu og haft bein áhrif á stefnu félagsins.

Betri aðstaða

Tekjurnar renna til Aðalstjórnar sem nýtir þær til að efla aðstöðu íþróttafólks og félagsins í heild.

Hluti af heildinni

Þú sýnir í verki að þú stendur með Keflavík, innan vallar sem utan.

Hvernig virkar þetta?

Þrjú einföld skref og þú ert orðin/n félagsmaður.

1

Opnaðu Abler

Skráðu þig inn í Abler, appið eða vefinn. Ef þú ert ekki með aðgang tekur örstutta stund að stofna hann.

2

Veldu félagsaðild

Finndu Keflavík og veldu „Félagsmaður Keflavíkur“.

3

Greiddu árgjaldið

Árgjaldið er 4.000 kr. og þar með ertu formlega Félagsmaður Keflavíkur. Velkomin/n!

Skráðu þig hér

Skráning fer fram í gegnum Abler og er opin öllum, ungum sem öldnum.

Í gegnum Abler

Ef þú ert nú þegar með aðgang í Abler, til dæmis vegna æfingagjalda, ertu aðeins nokkra smelli frá því að verða Félagsmaður Keflavíkur.

Skrá mig í Abler →

Spurt og svarað

Af hverju er þetta að gerast núna?

Á Íþróttaþingi 2025 samþykkti ÍSÍ breytingar á lögum sínum. Nú er íþróttafélögum meðal annars skylt að halda bæði iðkenda- og félagaskrá. Félagsmaður Keflavíkur er svar okkar við þessum breytingum.

Hver getur orðið félagsmaður?

Allir sem þess óska, ungir sem aldnir.

Hvert fara peningarnir?

Tekjurnar renna til Aðalstjórnar og eru haldnar aðskildar. Þær eru ekki ætlaðar til að safnast upp heldur til að nýtast til góðra verka innan félagsins, til dæmis til að efla aðstöðu íþróttafólksins okkar.

Ég sit í stjórn, þarf ég að skrá mig?

Nei, þeir sem kosnir eru til stjórnarstarfa verða sjálfkrafa skráðir sem félagsmenn.

Hver heldur utan um félagaskrána?

Aðalstjórn setur reglur um félagaskrá, ákveður innheimtu félagsgjalda og heldur utan um félagaskrá Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags.