VISA bikarúrslitaleik Keflavíkur og KR
Nú styttist óðfluga í
Boðið verður upp á sætaferðir frá K-Húsinu og inn í Laugardal og leggja rúturnar af stað kl. 14:30. Frítt er í rúturnar í boði Sparisjóðsins í Keflavík, Reykjanesbæjar, Nesprýðis, Saltvers og Hitaveitu Suðurnesja.
Miðaverð á leikinn fyrir 17 ára og eldri er kr. 1000 en 16 ára og yngri fá frítt inn í boði
Heiðursgestur á Laugardalsvelli á morgun verður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra. Dómari leiksins verður Sævar Jónsson.
Blaðamannafundur fyrir úrslitaleikinn fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í gærdag þar sem fyrirliðar og þjálfarar liðanna ræddu leikinn framundan og undirbúning liðsins. Þar sagði Salih Heimir Porcha, þjálfari Keflavíkur, að vonast yrði til þess að sóknarmaðurinn Guðný Petrína Þórðardóttir gæti verið með í leiknum á morgun. Guðný hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu en hefur æft með Keflavík í vikunni. Það kemur í ljós síðar í dag eða snemma á morgun hvort Guðný verði með í leiknum.
Bikarkeppni kvenna hófst árið 1981 en síðan þá hefur KR unnið bikarinn tvívegis en Keflavík aldrei. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu hjá RÚV og kom það fram á blaðamannafundinum í gær í fyrirspurn blaðamanns frá DV hvort leikurinn yrði allur sýndur. Ekki ósanngjörn spurning frá DV mönnum þar sem það hefur áður gerst að RÚV hefur klippt á beina útsendingu fyrir fréttir. sem leikurinn hefst kl. 16:00 ætti útsendingu næsta víst að ljúka áður en að fréttum kemur.
Stuðningsmenn Keflavíkur fá aðsetur í Norðurenda stóru stúkunnar á Laugardalsvelli en stuðningsmenn KR verða í Suðurendanum. Fólk er hvatt til að fjölmenna á leikinn og styðja rækilega við bakið á sínum liðum.
Fréttin er tekin af vef Víkurfrétta vf.is