Umhverfisdagur Keflavíkur
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag tekur til í nærumhverfi sínu.
Það er okkar markmið að vel sé gengið um keppnissvæði og nærumhverfi félagsins, þau séu snyrtileg og okkur til sóma.
Viljum við sýna gott fordæmi með því að efna til umhverfisdags innan félagsins þar sem stjórnarmönnum og öðrum félagsmönnum gefst kostur á að koma og leggja sitt af mörkum.
Viljum beina þeim tilmælum til okkar stuðningsmanna og annarra sem koma og styðja við bakið á iðkendum um að ganga ætíð vel um íþróttasvæðin „Hreint land fagurt land“.
Erum í samstarfi við Víkurfréttir (fjalla um atburðinn), Samkaup (tekur þátt í grillinu) og Reykjanesbæ (umhverfissviðið leggur til ruslapoka og fargar því rusli sem safnast eftir þessa tiltekt).
Þökkum öllum þeim aðilum sem koma að þessu með okkur.
Áfram Keflavík.
UMHVERFISDAGUR KEFLAVÍKUR ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLAGS 2013
Dagurinn er laugardagurinn 27. apríl sem er kosningardagurinn.
Stjórnir deilda kom og fá sitt fólk í lið með sér og fegra sín svæði.
Við gerum okkur svo glaðan dag og endum þetta með grilli.
Dagskráin: 10:00 – 12:00
Mæting í félagsheimilið okkar að Sunnubraut 34 kl.10:00
Deildir taka til í sínu umhverfi:
Aðalstjórnin tekur til í kringum Hringbraut 108.
Knattspyrnudeild tekur til á Hringbrautarsvæðinu kringum knattspyrnuvöllinn
Körfuknattleiksdeild tekur til í kringum íþróttahúsið við Sunnubraut
Fimleikadeild tekur til í kringum Íþróttaakademíuna
Sunddeild tekur til í kringum Sundmiðstöðina
Badminton- og blakdeild tekur til í kringum Heiðarskóla
Taekwondodeild tekur til í kringum svæðið sitt að Iðavöllum
Skotdeild tekur til á sínu svæði í Heiði Höfnum
Endað með grillveislu í félagsheimili okkar um kl. 12:00 þar sem boðið verður upp á hamborgara og gos og að sjálfsögðu grillar formaðurinn.