Fréttir

Þorrabakki Keflavíkur 2021
Aðalstjórn | 18. janúar 2021

Þorrabakki Keflavíkur 2021

Þorrabakkar Keflavíkur og SoHo

Það er auðvitað ekkert annað en sorglegt að geta ekki haldið okkar árlega Þorrablót en við verðum bara að bíta í það súra. En ætlunin er að halda álíka viðburð um leið og aðstæður bjóða upp á það.

En til þess að Keflvíkingar fái samt Þorramatinn sinn þá erum við í samvinnu við SoHo búin að setja í sölu Þorrabakka. Einn bakki inniheldur bæði súrmeti og nýmeti og kosta saman 7.500. Einnig er hægt að kaupa bara súrmeti eða bara nýmeti, þið veljið. Allir bakkar er settir saman fyrir tvo manns.

Pöntun og greiðsla fer í gegnum vefverslun Keflavíkur. https://keflavik.felog.is/verslun/flokkur/100...
Allir bakkar verða keyrðir heim að dyrum seinnipart á föstudaginn. (Ef óskað er eftir að fá bakkana fyrir hádegið þá er hægt að hringja í 840-0302)

Þorrabakkarnir verða í boði næstu tvær helgar (þá þriðju ef vel gengur) og þarf að vera búinn að panta fyrir 20:00 á miðvikudegi.

Fyrirtæki og hópar (lágmark 10 manns) geta einnig hringt í 840-0302 og gengið frá pöntun. Í hópapöntunum er boðið upp á svið, saltkjöt, kartöflur og uppstúf auk alls þess sem er í súrmetis- og nýmetisbökkum í auglýsingunni hér fyrir neðan.