Sértækur styrkur til foreldra
Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn. Um 870 börn hér í Reykjanesbæ eiga rétt á að sækja um. Þetta er alfarið undir foreldrum komið að kanna sinn rétt inná www.island.is . Leggja þarf fram kvittun fyrir æfingagjöldum. Það er vert að taka það fram að foreldrar þurfa að vera búnir að greiða 45.000 í æfingagjöld eða tómstundir til að falla undir skilyrðin.
Við höfum útbúið leiðbeiningar sem eru á heimasíðunni okkar hvernig foreldrar sækja kvittun í Nóra
Smella hér inn á leiðbeiningar á kvittun úr Nóra
Smella hér til að sjá myndbönd
We have prepared instructions on our website on how parents can pick up a receipt in Nóra
formaður Keflavíkur