Fréttir

Aðalstjórn | 7. september 2011

Sængurverasett með Keflavíkurmerkinu

Skrifað var undir samstarfssamning í Smáralindinni á milli Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags og Hagkaups vegna sölu á sængurverum merktum Keflavík. Nú er sem sagt hægt að kaupa sængurverasett með Keflavíkurmerkinu á. Átta önnur félög koma að samstarfinu en þau eru: Breiðablik, Stjarnan, KR, Fjölnir, HK, FH, Fylkir og Haukar auk Keflavíkur.
Keflavík fær til sín kr. 500 af hverju seldu sængurveri þannig að fólk styrkir sitt félag um leið og það kaupir flotta vöru.
Verðið á sængurverunum verður sambærilegt við það sem gerist á sængurfötum erlendra stórliða sem hafa verið ein mest seldu sængurver á Íslandi.