Fréttir

Kristmundur og Ástrós íþróttamenn Keflavíkur 2013
Aðalstjórn | 31. desember 2013

Kristmundur og Ástrós íþróttamenn Keflavíkur 2013

 

Kristmundur Gíslason og Ástrós Brynjarsdóttir taekwondo iðkendur voru útnefnd íþróttakarl og íþróttakona Keflavíkur 2013.

Í fyrsta sinn var útnefnt bæði íþróttakarl og íþróttakona Keflavíkur, en áður hefur verið útnefnt óháð kyni.

Myndir

Afrek Kristmundar:

Kristmundur var valinn taekwondo maður Íslands af ÍSÍ fyrir árið 2012. Hann er einn virkasti og efnilegasta keppandi þjóðarinnar. Hann hefur tekið þátt í stórmótum eins og EM og HM með góðum árangri. Kristmundur sigraði stórt alþjóðlegt mót á fyrsta árinu sínu í fullorðinsflokki, en Kristmundur er nýorðinn 18 ára gamall. Þrátt fyrir það þá hefur hann lengi keppt við fullorðna með góðum árangri. Kristmundur þjálfar einnig hjá Keflavík og Grindavík þar sem hann miðlar reynslu sinni til yngri kynslóða. Kristmundur hefur tekið stakkaskiptum sem íþróttamaður á síðustu misserum, en hann hefur helgað sig líferni íþróttamannsins og uppsker eftir því. Hann hefur bætt styrk, hraða, úthald og líkamsástand svo um munar og finna andstæðingar hans undandtekningalaust fyrir því í hvert sinn sem hann stígur á keppnisgólfið.

Árangur á árinu:

Bikarmót 2 – Gull í bardaga

Bikarmót 1 – Gull í bardaga

Íslandsmót í bardaga – gull í +78kg flokki

Íslandsmót í bardaga – sigraði liðakeppnina

Íslandsmót í tækni – sigraði liðakeppnina

Millenium Open – Brons í -87kg

EM -21 – Tók þátt

Scottish Open – Gull í bardaga

Scottish Open – Brons í einstaklingstækni

Scottish Open – Silfur í hópatækni

 

Afrek Ástrósar:

Ástrós Brynjarsdóttir var valin taekwondo kona Íslands árið 2012. Hún hefur sýnt fram á langtum besta árangur sem nokkur íslensk taekwondo kona hefur náð á einu ári frá upphafi. Á árinu 2013 var hún valin besta keppandinn á öllum bikarmótunum sem voru haldin, á Íslandsmótinu í tækni og á Reykjavik international games sem er alþjóðlegt mót. Ástrós varð Norðurlandameistari á árinu, en hún keppni auk þess á tvennum Evrópumótum og þremur alþjóðlegum mótum. Ástrós er mikið efni og hefur sýnt ótrúlegan vilja og bætingar á árinu. Hún hefur æft með Ólympíukeppendum og heimsklasa þjálfurum, vakið athygli fyrir góða tækni hvar sem hún fer og sigrað hvert mótið á fætur öðrum. Það er augljóst að hér er á ferðinni ein efnilegasta íþróttakona landsins.

Árangur ársins 2013:

Reykjavik International games – Gull í bardaga

Reykjavik International games – Gull í paratækni

Reykjavik International games – Gull í hópatækni

Reykjavik International games – Silfur í einstaklingstækni

Reykjavik International games – Valin besti kvenkeppandi leikanna í taekwondo

Bikarmót 2 – Gull í bardaga

Bikarmót 2 – Gull í einstaklingstækni

Bikarmót 2 – Valin besti keppandi kvenna í tækni

Bikarmót 2 Valin besti keppandi kvenna í samanlögðum árangri

Evrópumót í tækni einstaklings – 9. Sæti

Evrópumót í tækni para – 10. Sæti

Spanish Open í einstaklingstækni – 7. Sæti

Spanish Open í paratækni – 4. Sæti

Íslandsmót í bardaga – Gull í -47 kg flokki

Íslandsmót í bardaga – Sigraði liðakeppnina fullorðna

Bikarmót 3 – Gull í bardaga

Bikarmót 3 -  Gull í tækni

Bikarmót 3 – Besti keppandi kvenna í tækni

Bikarmót 3 -  Besti keppandi kvenna í samanlögðum árangri

Norðurlandamót – Gull í bardaga

Norðurlandamót  - Silfur í tækni

Landsmót UMFÍ – Gull í tækni

Evrópumót í bardaga – 5. sæti af 27 keppendum, tapaði naumlega fyrir stúlkunni sem varð í 2. Sæti

Íslandsmót í tækni – Gull í einstaklingstækni svört belti

Íslandsmót í tækni – Gull í paratækni fullorðna svört belti

Íslandsmót í tækni – Gull í hópatækni fullorðna svört belti

Íslandsmót í tækni – Valin keppandi mótsins hjá konum

Íslandsmót í tækni – vann liðakeppnina

Scottish Open – Gull í bardaga

Scottish Open – Gull í einstaklingstækni

Scottish Open – Gull í paratækni

Bikarmót 1 – Gull í bardaga flokki 1

Bikarmót 1 – Gull í bardaga flokki 2

Bikarmót 1 – Gull í tækni

Bikarmót 1 – Valin kvenkeppandi mótsins

Samtals verðlaun á árinu

Gull – 19

Silfur – 2

Samtals Íslandsmeistaratitlar – 6 (2 af þeim voru liðstitlar)

Samtals bikarmeistarasigrar – 8 (1 af þeim var liðssigur)

Samtals viðurkenningar fyrir besta árangur mótsins - 8

Annað – Var valin nemandi ársins í fullorðinshóp hjá Keflavík

Var valin taekwondo kona Íslands á lokahófi ÍSÍ 2012

Var valin taekwondo kona Íslands á lokahófi ÍSÍ 2013