Keflavíkurmót í öldungaflokki
Innanfélagsmót Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags í öldungaflokki verður haldið laugardaginn 12.mars kl. 14:00. Mótið fer fram í b-sal íþróttahúss við sunnubraut 34
Keppt verður í hástökki með og án atrennu.
Hægt er að skrá sig með að senda póst á keflavik@keflavik.is en einnig er hægt að skrá sig á staðnum.