Keflavík íþrótta- og ungmennafélag 80 ára
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag 80 ára í dag
Til hamingju með afmælið
Í dag verður boðið til afmælisveislu í íþróttahúsinu við Sunnbraut, B- sal.
Öllum iðkendum, foreldrum, þjálfurum og öðrum velunnurum Keflavíkur er boðið að koma og þiggja skúffuköku í íþróttahúsinu við Sunnbraut B- sal frá kl. 16:00 – 18:00.
Í kvöldið er öllum stjórnarmönnum deilda félagsins ásamt mökum boðið að koma og þiggja léttar veitingar í félagsheimili Keflavíkur.
Sunnudaginn 4. október verður boðsgestum boðið til opnunar á sögusýningu kl. 14:00 til 16:00 í félagsheimili Keflavíkur. Sýningin verður svo opin almenningi frá kl. 16:00 – 18:00 sama dag. Áformað er að sýningin standi yfir í ca. tvær til þrjár vikur efir aðsókn. Opnunartími verðu auglýstur á heimasíðu félagsins www. keflavik.is
Saga Keflavíkur var skráð í tilefni af 80 ára afmæli félagsins .
Saga Keflavíkur í 80 ár verður kynnt á sögusýningunni. Bókin verður svo til sölu á skrifstofu félagsins. Eðvarð T. Jónsson sá um að skrifa söguna, myndvinnsla, umbrot og uppsetningu Stapaprent og Oddi prentaði bókina.