Fréttir

Aðalstjórn | 24. september 2003

Keflavík fyrsta félagið til að fá gæðastimpil ÍSÍ

Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag og Íþróttabandalag Reykjarnesbæjar fengu í gær fyrstu viðurkenningar vegna gæðaverkefnis ÍSÍ er heitir „fyrirmyndarfélag ÍSÍ“. Þrjár deildir innan félagsins höfðu uppfyllt þau skilyrði, fyrstar allra deilda á landinu, sem þurfti til að geta kallað sig fyrirmyndardeild innan ÍSÍ.
Þetta eru  fimleikadeild, badmintondeild og sunddeild Keflavíkur.