Íþróttamaður og íþróttamenn Keflavíkur 2006.
Ákveðið hefur verið að velja íþróttamann Keflavíkur og sæma hann titlinum í hófi í félagsheimili félagsins að Hringbraut 108 þann 27. desember 2006 klukkan 20:00. Fær sá veglega eignarbikar og myndarlegan farandbikar sem Samkaup gefur. Einnig verða valdir íþróttamenn deilda félagsins. Iðkendur, félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta.
f.h. Aðalstjórnar Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður