Íþróttamaður Keflavíkur 2009
Íþróttamaður Keflavíkur verður útnefndur í hófi þann 29. desember 2009 klukkan 20:00 í félagsheimili félagsins að Hringbraut 108 . Fær sá veglega eignarbikar og myndarlegan farandbikar sem Samkaup gefur. Einnig verða valdir íþróttamenn deilda félagsins.
Iðkendur, félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta.
Fh félagsins Einar Haraldsson