Íþróttalýðháskólar Danmörku
Íþróttalýðháskólar í Danmörku – styrkir til náms
Eins og undanfarin ár styrkir Ungmennafélags Íslands ungt fólk til náms í Lýðháskólum í Danmörku. UMFÍ hefur gert samning við tíu skóla víðs vegar í Danmörku og er styrkurinn háður því að sótt sé um viðkomandi skóla. Nánari upplýsingar um skólana er að finna á heimasíðu UMFÍ /veftre/verkefni/erlend_samskipti/ithrottalydhaskolar/
Umsóknarfrestur fyrir styrk á haustsmisseri er til 15. ágúst. Fyrir nám á vorönn skal sækja um fyrir 1. september.
Frekari upplýsingar fást á Þjónustumiðstöð UMFÍ Sigtúni 42 í síma 568-2929. Senda á styrkumsóknir á netfangið sabina@umfi.is fyrir 15. ágúst.