Fréttir

Gústi okkar í íþróttahúsinu lætur af störfum
Aðalstjórn | 2. mars 2026

Gústi okkar í íþróttahúsinu lætur af störfum

Nú í febrúar lét hann Gústi okkar í íþróttahúsinu af störfum. Gústi hefur verið okkur Keflvíkingum afar dýrmætur í störfum sínum í húsinu. Hann hefur starfað lengi hjá Reykjanesbæ og er nú kominn á þann aldur að hann ætlar að njóta lífsins.

Það er mikill söknuður af manni eins og Gústa, sem er með hjarta úr gulli og ber hlýhug til Keflavíkur og iðkenda félagsins – þó hann sé jú Njarðvíkingur.

Okkur þykir afar vænt um hann og ef við þekkjum hann rétt þá mun hann halda áfram að mæta til okkar í kaffi og á leiki.

Takk fyrir frábær störf í húsinu okkar og fyrir Keflavík – það þarf fólk eins og þig!

 

Myndasafn