Fréttir

Aðalstjórn | 30. október 2003

Gæðaviðurkenning ÍSÍ

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, ÍSÍ, í samvinnu við Íþróttabandalag Reykjanesbæjar bauð sl. mánudag til blaðamannafundar þar sem afhentar voru viðurkenningarnar vegna gæðaverkefnis ÍSÍ er heitir Fyrirmyndarfélag/deild ÍSÍ. Athöfnin fór fram í félagsheimili Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags að Hringbraut 108.
Tvær deildir innan Keflavíkur hlutu viðurkenningu að þessu sinni en þær eru : Knattspyrnudeild Keflavíkur og Körfuknattleiksdeild Keflavíkur einnig hlutu Hestamannafélagið Máni og Sunddeild Njarðvíkur viðurkenningar.
Áður höfðu þrjár deildir Keflavíkur hlotið slíka viðurkenningu, í apríl 2003, en það voru Fimleikadeild Keflavíkur, Sunddeild Keflavíkur og Badmintondeild Keflavíkur.
Eru því fimm deildir innan Keflavíkur sem holtið hafa gæðaviðurkenningu ÍSÍ.

Félögin eru þau einu sem hafa hlotið þessar viðurkenningu frá ÍSÍ. Viðurkenningin er veitt þeim félögum fyrir barna og unglingastarf sitt. Til að öðlast gæðaviðurkenningu ÍSÍ þurfa félög eða deildir að uppfylla nokkur skilyrði.
Eftirfarandi þætti innan íþróttafélagsins/deildarinnar þurfti að skoða: Skipulag félagsins og deildir. Umgjörð þjálfunar og keppni. Fjármálastjórn. Þjálfaramenntun. Félagsstarf. Foreldrastarf. Fræðslu og forvarnarstarf. Jafnréttismál og umhverfismál.

Mynd:
Kristín Kristjánsdóttir formaður unglingaráðs Körfuknattleiksdeildar og
Ingólfur Karlsson formaður unlingaráðs Knattspyrnudeildar með
viðukenningar ÍSÍ.