FORVARNARDAGURINN
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhenti í gær, þriðjudaginn 18. desember kl. 14.00, þremur ungmennum verðlaun í net-ratleik sem efnt var til í grunnskólum landsins á Forvarnardaginn 2007. Athöfnin var á Bessastöðum.
Verðlaunahafarnir voru þeir Eiður Rafn Hjaltason, Heiðarskóla í Leirársveit, Magnús Ellert Steinþórsson, Grunnskólanum á Þingeyri og Vilhjálmur Patreksson, Landakotsskóla. Þeir leystu verkefni sem samið var af fulltrúum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, Ungmennafélagi Íslands og Bandalags íslenskra skáta. Verkefnið snerist um þekkingu á starfsemi þessarra hreyfinga sem byggði á því að kynna sér hana á heimasíðum þeirra. Hundruð grunnskólanemenda sendu inn réttar lausnir og voru vinningshafarnir dregnir úr þeim hópi.
Forvarnardagurinn var haldinn um allt land þann 21. nóvember síðastliðinn. Sérstök dagskrá var í öllum 9. bekkjum grunnskólanna þar sem ungmenni tókust á við spurningar um aukna samveru foreldra og ungmenna, þátttöku í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og mikilvægi þess að fresta því að hefja neyslu áfengis. Fylgi ungmenni nokkrum einföldum heillaráðum eru hverfandi líkur á því að þau leiðist inn á braut fíkniefna.
Forseti Íslands hafði frumkvæði að Forvarnardeginum en ásamt forsetaembættinu stóðu að deginum Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og lyfjafyrirtækið Actavis sem var styrktaraðili Forvarnardagsins. Háskólinn í Reykjavík fór með verkefnisstjórn.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu Forvarnardagsins, www.forvarnardagur.is, og hjá Ólöfu Kristínu Sívertsen, verkefnisstjóra, í s. 695-0206.
Verðlaunahafarnir
Vilhjálmur Patreksson, Eiður Rafn Hjaltason, Magnús Ellert Steinþórsson og Ólafur Ragnar Grímsson