Fréttir

Fjölbraut með afreksíþróttasvið
Aðalstjórn | 21. júní 2012

Fjölbraut með afreksíþróttasvið

Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður upp á afreksíþróttasvið

 

Næsta haust býður Fjölbrautaskóli Suðurnesja upp á afreksíþróttasvið en það er ætlað nemendum sem vilja stunda íþrótt sína með álagi afreksíþróttamanna, samhliða krefjandi bóknámi.  Reiknað er með að boðið verði upp á knattspyrnu, körfuknattleik, sund, fimleika, vetraríþróttir og fleira.  Það miðast við áhuga umsækjenda hvaða íþróttagreinar verða í boði.  Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á öllum bóklegum brautum.  Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið verður innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld.


Nemendur á afreksíþróttasviði fá tækifæri til að æfa íþrótt sína í upphafi skóladags undir stjórn menntaðra þjálfara.  Einnig verður þeim boðið upp á fræðslu varðandi næringarfræði, íþróttasálfræði, íþróttalíffræði, framkomu í fjölmiðlum og fleira.  Fylgst verður með árangri og framförum og nemendur taka m.a. þolpróf, hraðapróf, liðleikapróf, styrktarpróf, tæknipróf og persónuleikapróf.


Til að fá inngöngu á afreksíþróttasvið þurfa umsækjendur að vera með góðan námsárangur, hafa náð árangri í íþrótt sinni og hafa stundað hana í 6-10 ár, vera í hópi þeirra bestu meðal jafnaldra, hafa meðmæli síns íþróttafélags, vera í góðu líkamlegu ástandi og hafa rétt hugarfar til náms og íþrótta.


Þeir sem hafa innritað sig í Fjölbrautaskólann og hafa áhuga á að stunda nám á afreksíþróttasviði eru hvattir til að hafa samband við skólann sem fyrst.