Fréttir

Færri takmarkanir á íþróttastarfi
Aðalstjórn | 25. maí 2020

Færri takmarkanir á íþróttastarfi

Fjöldatakmarkanir víkkaðar úr 50 manns í 200.  

 

Eftir helgina, mánudaginn 25. maí, verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í einu rými í stað 50 nú og heimilt verður að opna íþróttamannvirki og líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og aðra staði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis er jafnframt lagt til að engar sérstakar takmarkanir verði á íþróttastarfi en gæta þarf að hámarksfjölda fullorðinna allt að 200 manns í sama rými.

Þetta kemur fram í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem birt var í dag og tekur gildi eftir helgi.

Þó er tekið fram í auglýsingunni að í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar þegar fleiri en 200 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Þar á meðal eru íþróttaviðburðir og aðrir viðburðir þar sem fleiri en 200 manns koma saman. 

Í auglýsingunni er hvatt til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er, eins og nánar er fjallað um í auglýsingunni. Auglýsingin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um breytingar á takmörkun á samkomum á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Með nýrri auglýsingu verður framkvæmd tveggja metra reglurnar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.

Á líkamsræktarstöðvum verður, líkt og á á sund- og baðstöðum, takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Eins og fram kemur í auglýsingunni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif almenningsrýma og hingað til.

Ný auglýsing um takmörkun á samkomubanni gildir til 21. júní.