Fréttir

Einar Haraldsson sæmdur æðstu heiðursviðurkenningu UMFÍ
Aðalstjórn | 12. október 2025

Einar Haraldsson sæmdur æðstu heiðursviðurkenningu UMFÍ

Um liðna helgi var haldið glæsilegt sambandsþing UMFÍ í Stykkishólmi.  Þar var okkar fyrrum formaður og framkvæmdarstjóri sæmdur heiðurs félagakrossi UMFÍ fyrir áralangt og ómetanlegt starf fyrir íþróttahreyfinguna.

Hér er meira um Einar eins og fram kemur í frétt UMFÍ:

Magndís og Einar sæmd æðstu viðurkenningu UMFÍ - Ungmennafélag Íslands

Einar Haraldsson hefur haft djúpstæð áhrif á íþróttastarf á Suðurnesjum í mörg ár. Það er kannski ekki á allra vitorði en Einar er aðfluttur í Keflavík, fæddur í Reykjavík og alinn upp í Garðahreppi og útskrifaður úr húsasmíði frá Iðnaskólanum í Hafnarfirði.

Einar flutti ekki til Keflavíkur fyrr en árið 1977.

En það skiptir auðvitað engu fyrir okkar sögu og íþróttamál í Keflavík því hann er fyrir löngu orðinn rótgróinn hluti af samfélaginu.

Ferill Einars í keflvísku íþróttalífi spannar rúm 40 ár.

Hann var kjörinn í varastjórn Ungmennafélags Keflavíkur árið 1985 og varð síðasti formaður félagsins níu árum síðar. Um mitt ár 1994 varð Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag til úr sex íþróttafélögum. 

Einar stóð vaktina af elju í 39 ár, þar af 26 sem formaður og 25 ár sem framkvæmdastjóri Keflavíkur.

Einar hefur auk þess látið til sín taka í stjórn UMFÍ. Hann sat í varastjórn UMFÍ um fjögurra ára skeið, frá 2003 til 2007 og í aðalstjórn næstu fjögur ár á eftir. Stjórnarseta hans taldi því 8 ár. Hann sat þar í framkvæmdastjórn ásamt fleiri nefndum og á nú sæti í fjárhags- og greiningarnefnd. Hann hefur auk þess tekið þátt í öðru starfi UMFÍ eins og í starfi Almannaheilla. 

Þar utan sat hann í stjórn Íþróttabandalags Reykjanesbæjar í áratug, bæði sem varaformaður og formaður.

Einar hefur ekki aðeins sinnt félagsmálum af mikilli ábyrgð heldur einnig verið drifkraftur í uppbyggingu, samstöðu og árangri Keflavíkur. Hann hefur verið traustur leiðtogi, hlýr félagi og orðstír hans afar góður.

Keflavík óskar Einari innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.