Fréttir

Aðalstjórn | 22. mars 2010

Bláa Lónið styrkir íþróttafélögin á Suðurnesjum.


 

Bláa Lónið styrkir íþróttafélögin á Suðurnesjum.

Bláa Lónið hefur  veitt íþróttafélögunum á Suðurnesjum styrki. Fulltrúar íþróttafélaganna í Garði, Grindavík, Reykjanesbæ, Sandgerði og Vogum veittu  veittu styrkjunum móttöku föstudaginn 19. mars á Lava, veitingastað Bláa Lónsins. 
Eftirfarandi greinar hlutu styrki: knattspyrna, körfuknattleikur, sund, fimleikar, badminton,  júdó, skotfimi, lyftingar, hnefaleikar, og handbolti auk NES íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum. Heildarvirði styrkjanna nú er um 4 milljónir króna en þeir eru á formi aðgangskorta í Bláa Lónið.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sagði við þetta tækifæri að það væri bæði ánægjulegt og mikilvægt fyrir Bláa Lónið að koma með öflugum hætti að íþrótta- og æskulýðsstarfi á Suðurnesjum. „Það er markmið okkar hjá Bláa Lóninu að styrkirnir verði öðrum fyrirtækjum hvatning til að efla fjölbreytt æskulýðs- og íþróttastarf á Íslandi enn frekar og við horfum til áframhaldandi góðs samstarfs Bláa Lónsins og íþróttafélaganna á Suðurnesjum.“

Keflavík íþrótta- og ungmennafélag þakkar Bláa Lóninu  fyrir veittan stuðning.
Það er gott þegar fyrirtæki koma af fyrra bragði og vilja styrkja íþróttahreyfinguna og fyrir það ber að þakka.
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur