Aðalstjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags endurkjörin
Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags var haldinn í gærkveldi 27. febrúar 2006 og var stjórnin endurkjörin, en hana skipa Einar Haraldsson formaður, Kári Gunnlaugsson, Þórður Magni Kjartansson, Sigurvin Guðfinnsson og Birgir Ingibergsson. Varmenn eru Sveinn Adolfsson, Bjarney S. Snævarsdóttir og Guðjón Axelsson. Stjórnin skiptir svo með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi sem verður haldinn 2. mars.
Veitt voru sex bronsmerki fyrir fimmára stjórnarsetu en þau fengu
Einar Skaftason körfuknattleiksdeild
Gunnar Jóhannsson körfuknattleiksdeild
Hermann Helgason körfuknattleiksdeild
Níels Hermannsson sunddeild
Árni Leifsson skotdeild
Geir Gunnarsson skotdeild
Veitt voru fjögur silfurmerki fyrir tíuára stjórnarsetu en þau fengu
Árni Pálsson skotdeild
Sesselja Birgisdóttir badmintondeild
Sigurvin Guðfinnsson aðalstjórn
Þórður Magni Kjartansson aðalstjórn
Starfsbikar félagsins hlaut
Kristín H. Kristjánsdóttir
fyrrum formaður unglingaráðs körfuknattleiksdeildar
Veitt voru tvö starfsmerki UMFÍ
Framkvæmdastjóri UMFÍ Sæmundur Runólfsson sæmdi
Jónas Þorsteinsson og Bjarneyju S. Snævarsdóttur starfsmerki UMFÍ.