Fréttir

Aðalstjórn | 29. mars 2012

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Keflavíkur 2012

 

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður haldinn föstudaginn 30. mars kl. 17:30
í félagsheimili félagsins Sunnubraut 34 2. hæð.
Hermann Helgason er sjálfkjörinn formaður.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Úr lögum félagsins.

Aðalfundir deilda.
20. gr.
Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund viðkomandi deildar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi.

21. gr.
Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri  hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega á heimasíðu félagsins. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.

22. gr.
Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:
1. Fundarsetning.
2. a) Kosinn fundarstjóri
b) Kosinn fundarritari.
3. Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.
4. Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.
5. Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.
6. Ávörp gesta.
7. Kosningar:
a) Kosinn formaður til eins árs.
b) Kosnir 2 meðstjórnendur til tveggja ára.
c) Kosnir 3 menn í varastjórn.
d) Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
e) Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.
8. Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.
9. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
10. Önnur mál.
11. Fundi slitið.
Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund
deildarinnar.