Fréttir

Aðalstjórn | 7. febrúar 2011

AÐALFUNDUR KEFLAVÍKUR íþrótta- og ungmennafélags

 

AÐALFUNDUR KEFLAVÍKUR íþrótta- og ungmennafélags verður haldinn mánudaginn 28. febrúar í félagsheimili okkar að Sunnubraut 34 kl.20:00
Hefðbundin aðalfundardagskrá samkvæmt 8gr. laga félagsins.
Lagabreytingar liggja fyrir fundinum.
Allir velkomnir.
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur



Úr lögum félagsins.
 Aðalfundur félagsins.
7. gr.

   Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald og ákvörðunarrétt í öllum málum þess.  Skal hann haldinn eigi síðar en 1. mars ár hvert.  Auglýsa skal aðalfundinn opinberlega, í staðarblöðum, með 2 vikna fyrirvara.  Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað.
   Tillögum um breytingar á lögum félagsins skal senda aðalstjórn eigi síðar en 3 vikum fyrir aðalfund.  Heimilt er þó að taka fyrir á aðalfundi tillögur til breytinga á lögum félagsins, sem síðar koma fram ef 2/3 hlutar viðstaddra atkvæðisbærra fundarmanna eru því samþykkir.

8.gr.
Dagskrá aðalfundar.

   Dagskrá aðalfundar félagsins skal vera sem hér segir:

              1.      Fundarsetning.
              2.      a) Kosinn fundarstjóri
                       b) Kosinn fundarritari.
              3.      Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
              4.      Formaður félagsins leggur fram skýrslu aðalstjórnar      
                       um starfssemi og framkvæmdir á liðnu starfsári.
              5.       a) Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir   
                           endurskoðaða reikninga aðalstjórnar og félagsins
                            í heild fyrir liðið starfsár til samþykktar.
                       b) Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
                6.      Lagðir fram reikningar fastra nefnda til samþykktar.
                7.      Lagabreytingar sbr. 7. gr. og 10. gr.
                8.      Kosinn formaður.
                9.      Kosnir 4 menn í stjórn.
               10.     Kosnir 3 menn í varastjórn.
               11.     Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara.
               12.     Kosning fastra nefnda er aðalfundur ákveður.
               13.     Ákveðið félagsgjald og ævifélagsgjald.
               14.     Önnur mál
               15.     Fundarslit.