Fréttir

Aðalstjórn | 13. febrúar 2008

AÐALFUNDUR KEFLAVÍKUR íþrótta- og ungmennafélags

 

 

KEFLAVÍK íþrótta- og ungmennafélag heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 28. febrúar kl. 20:00 í félagsheimili sínu að Hringbraut 108. Venjuleg aðalfundarstörf.

     

 Dagskrá fundarins samkvæmt 8. gr. laga félagsins


                                 8.gr.
                     Dagskrá aðalfundar.

   Dagskrá aðalfundar félagsins skal vera sem hér segir:

    1.      Fundarsetning.
    2.      a) Kosinn fundarstjóri
             b) Kosinn fundarritari.
    3.      Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
    4.      Formaður félagsins leggur fram skýrslu aðalstjórnar um starfssemi og framkvæmdir á liðnu starfsári.
    5.     a) Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir    
                endurskoðaða reikninga aðalstjórnar og félagsins 
                í heild fyrir liðið starfsár til samþykktar.
            b) Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
    6.      Lagðir fram reikningar fastra nefnda til samþykktar.
    7.      Lagabreytingar sbr. 7. gr. og 10. gr.
    8.      Kosinn formaður.
    9.      Kosnir 4 menn í stjórn.
   10.     Kosnir 3 menn í varastjórn.
   11.     Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara.
   12.     Kosning fastra nefnda er aðalfundur ákveður.
   13.     Ákveðið félagsgjald og ævifélagsgjald.
   14.     Önnur mál
   15.     Fundarslit.


Stjórnarfólk, iðkendur, foreldrar, velunnarar og aðrir áhugamenn um íþróttir eru hvattir til að mæta.

Fyrir hönd stjórnar
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur




Til baka