Fréttir

Aðalstjórn | 17. mars 2026

Frá aðalfundi Keflavíkur

Aðalfundur Keflavíkur var haldinn hátíðlega sl. miðvikudag, þann 11.mars.  Það var mjög góð mæting á fundinn og var ánægjulegt að sjá fullan sal af gestum.  Árið var mjög gott og rekstur allra deilda í góðu jafnvægi eins og sjá má á ársreikningum.    Þar ber helst að þakka óeigingjörnu starfi sjálfboðaliða sem við erum mjög lánsöm með í deildum félagsins.  Það voru 2 deildir sem fögnuðu stórafmæli á sl. ári en Fimleikadeildinn fagnaði 40 ára afmæli og Taekwondo deildin 25 ára.  Þessir deildir héldu myndarlega uppá sín tímamót.

Umfang íþrótta innan Keflavíkur er gríðalegt. Á árinu 2025 voru haldnir rúmlega 13.000 viðburðir/leikir í yngri flokkum hjá félaginu og erum við með yfir  100 þjálfara að störfum. 

Dagskrá var hefðbundin og fundarstjóri var Þórður Magni Kjartansson sem stýrði fundinum af röggsemi. Björg Hafsteinsdóttir formaður félagsins flutti skýrslu stjórnar og þar bar helst að nefna að aðstöðumál félagsins eru ekki í góðum málum og þarf mikið til að betrumbæta aðstöðu deilda hjá okkur sem er víðast hvar sprungin eða ekki viðhaldin.   Breytingar urðu á aðalstjórn félagsins nú á fundinum en Eva Björk Sveinsdóttirg og Garðar Örn Arnarson gengu úr aðalstjórn og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir vel unnin og óeignigjörn störf.  Það voru því 2 nýjir stjórnarmenn sem komu inní aðalstjórn í ár en það voru Hermann Helgason og Hildur María Magnúsdóttir.  Aðalstjórn skipa því eftirfarandi:   Björg Hafsteinsdóttir var endurkjörinn formaður og aðrir sem skipa stjórnina eru Sveinbjörg Sigurðardóttir, Garðar Newman, Jónína Steinunn Helgadóttir, Stefán Guðjónsson, Guðmundur Steinarsson, Hermann Helgason og Hildur María Magnúsdóttir.

Á fundinum var samþykkt að félagsgjald yrði tekið upp og er nú kominn hanppur á heimasíðunni þar sem þeir sem vilja gerast félagsmenn Keflavíkur geta auðveldlega skráð sig.  Ákveðið var að árgjald yrði 4000 kr.

Hér má gerast félagi - Félagaskráning

Undir liðnum ávörp gesta kom Halldór Breiðfjörð Jóhannsson formaður viðurkenningarnefndar KSÍ  og Rúnar V. Arnarson  formaður ÍRB og veittu Ólafi Birgi Bjarnasyni gullmerki KSÍ fyrir 21 árs setu í stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Það er mikilvægt að þakka fyrir óeigingjörn störf til okkar góða fólks sem hefur lagt félaginu hjálparhönd.  Að þessu sinni voru eftirfarandi viðrkenningar veittar á fundinum.

  • Eva Björk Sveinsdóttir fékk afhentan blómvönd fyrir störf sín fyrir fimleikadeildina árin 2004 – 2010 og aðalstjórn árin 2017 – 2026. Eva Björk lætur nú af störfum fyrir aðalstjórn. Eva Björk fékk Gullstarfsmerki Keflavíkur fyrir 15 ára störf sín á síðasta aðalfundi.
  • Starfsbikar Keflavíkur hlaut Magnús Jensson fyrir óeigingjarnt starf fyrir félagið. 
  • Sifurheiðursmerki Keflavíkur fengu Örn Garðarsson og Íris Guðjónsdóttir eigendur Soho og Magnús Þórisson og Ólafía Marelsdóttir eigendur Réttsins fyrir ómetanlega stuðning og aðstoð í þágu félagsins í fjölda mörg ár.
  • Gullheiðursmerki Keflavíkur var veitt þeim Jóni Ólafi Jónssyni og Herði Ragnarssyni fyrir þeirra störf í þágu félagsins sem knattspyrnumenn á gullaldarárum knattspyrnunnar, stjórnarsetu í stjórnum KFK og UMFK ásamt því að vera skoðunarmenn reikninga aðalstjórnar sl. 32 ár og eru enn að.

Að lokum afhjúpuðu þeir Hörður og Jón Ólafur minningarplatta um gullheiðurshafa Keflavíkur sem staðsettur er á stuðlabergi fyrir utan anddyri íþróttahússins.

Keflavík óskar öllu þessu frábæra fólki til hamingju með viðurkenningarnar.

Aðalstjórn vill koma á framfæri þakkir til allra sem sáu sér fært að mæta og Sunddeildinni okkar fyrir sjá um myndarlegt kaffihlaðborð í hléi.

Hér má nálgast skýrslu stjórnar og ársreikning  Skýrsla og reikningar 2025

Áfram Keflavík

 

Myndasafn