Fréttir

Aðalstjórn | 13. janúar 2010

AÐALFUNDUR KEFLAVÍKUR OG DEILDA ÁRIÐ 2010

AÐALFUNDUR  KEFLAVÍKUR OG DEILDA ÁRIÐ 2010

 



Taekwondodeild fimmtudaginn 21.janúar kl. 20,00 Hringbraut 108

Badmintondeild laugardaginn 23. janúar kl. 13,00 Hringbraut 108

Skotdeild laugardaginn 23. janúar kl. 16,00 Hringbraut 108

Körfuknattleiksdeild mánudaginn 25. janúar kl. 20,00 Hringbraut 108

Sunddeild þriðjudaginn 26. janúar kl. 20,00 Hringbraut 108

Fimleikadeild miðvikudaginn 27. janúar kl. 20,00 Akademíunni

Knattspyrnudeild  fimmtudaginn 28. janúar kl. 20,00 Hringbraut 108

Aðalstjórn fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20,00 Hringbraut 108

Tekið úr lögum félagsins

Aðalfundir deilda.
18. gr.
Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri  hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.

19. gr.
         Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:
              1.     Fundarsetning.
              2.     Kosinn fundarstjóri.
              3.     Kosinn fundarritari.
              4.     Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.
              5.     Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar      um starfssemina á liðnu starfsári.
              6.     Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða
                       reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.
              7.      Kosningar:
                       a)  Kosinn formaður.
                       b)  Kosnir 4 meðstjórnendur.
                       c)  Kosnir 3 menn í varastjórn
                       d)  Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara.
                       e)   Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.
              8.     Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.
              9.      Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
             10.    Önnur mál
             11.    Fundi slitið.
        Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund
           deildarinnar.




Fh.aðalstjórnar Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður