Fréttir

Aðalstjórn | 22. janúar 2012

AÐALFUNDIR DEILDA KEFLAVÍKUR ÁRIÐ 2012

 

Boðað er  til aðalfunda deilda
Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags.

Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Vakin er athygli á því að nú þarf sá aðili sem hefur áhuga á að gefa kost á sér til formanns að skila inn framboði fimm dögum fyrir aðalfund viðkomandi deildar. Framboðum skal skila inn til skrifstofu félagsins eða senda í tölvupósti á keflavik@keflavik.is. Ekki er heimilt að stinga upp á formanni á aðalfundi deildar.

Skilafrestur til að skila inn framboði til formanns deildar er eftirfarandi:
Badmintondeild 17. janúar fyrir kl. 24:00
Taekwondodeild 18. janúar fyrir kl. 24:00
Sunddeild 19. janúar fyrir kl. 24:00
Fimleikadeild 20. janúar fyrir kl. 24:00
Skotdeild 22. janúar fyrir kl. 24:00
Körfuknattleiksdeild 24. janúar fyrir kl. 24:00
Knattspyrnudeild 25. janúar fyrir kl. 24:00


AÐALFUNDIR DEILDA KEFLAVÍKUR ÁRIÐ 2012


Badmintondeild   mánudagur 23.  janúar kl. 20,00 Sunnubraut 34

Taekwondodeild þriðjudagur 24.  janúar kl. 20,30 Sunnubraut 34

Sunddeild   miðvikudagur 25.  janúar kl. 20,00 Sunnubraut 34

Fimleikadeild  fimmtudagur 26.  janúar kl. 20,00 Akademíunni

Skotdeild   laugardagur 28.  janúar kl. 14,00 Sunnubraut 34

Körfuknattleiksdeild mánudagur 30.  janúar kl. 20,00 Sunnubraut 34

Knattspyrnudeild  þriðjudagur 31.  janúar kl. 20,00 Sunnubraut 34

Lög félagsins í heild sinni

Úrdráttur úr lögum félagsins

Aðalfundir deilda.
20. gr.
Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund viðkomandi deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar.

21. gr.
Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri  hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega á heimasíðu félagsins. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.

22. gr.
Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:
1. Fundarsetning.
2. a) Kosinn fundarstjóri
b) Kosinn fundarritari.
3. Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.
4. Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.
5. Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.
6. Ávörp gesta.
7. Kosningar:
a) Kosinn formaður til eins árs.
b) Kosnir 2 meðstjórnendur til tveggja ára.
c) Kosnir 3 menn í varastjórn.
d) Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
e) Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.
8. Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.
9. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
10. Önnur mál.
11. Fundi slitið.
Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund
deildarinnar.


Fh.aðalstjórnar Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður