Íþróttastarf leggst af- í bili
Íþróttastarf um allt land leggst af til 17. nóvember
Samkvæmt hertum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem tilkynnt var í dag verður gert hlé á öllu íþróttastarfi frá og með miðnætti og til 17.nóvember. Við klárum því daginn í dag á æfingum deilda. Deildir félagsins munu svo gefa út frekari upplýsingar til sinna iðkenda um fjaræfingar í næstu viku sem við getum haldið úti. Við óskum þess að saman við hjálpumst að við að ná stjórn á ástandinu og að daglegt líf komist í eðlilegra horf aftur. Okkur finnst mikilvægt að hjálpast að við að vera jákvæð og að iðkendur haldi áfram að æfa sig á fjarformi og komi sterkir tilbaka til leiks þegar æfingar geta hafist aftur.
Við skorum á alla að hjálpast að og huga vel að sér bæði líkamlega og andlega, hugsa vel um persónulegar sóttvarnir og fara eftir tilmælum.
Áfram Keflavík