Fréttir

Einar Haraldson endurkjörinn formaður Keflavíkur
Aðalstjórn | 26. febrúar 2016

Einar Haraldson endurkjörinn formaður Keflavíkur

Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags var í gærkveldi fimmtudaginn 25. febrúar.
Einar Haraldsson var endurkjörinn sem formaður. Stjórn félagsins er óbreytt.

Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ veitti blakdeild Keflavíkur fyrstu vottun sína sem fyrirmyndarfélag/deild ÍSÍ einnig var endurnýjuð vottun badminton-, fimleika-, knattspyrnu-, körfuknattleiks-, skot, og sunddeild. Eru þá allar deildir félagsins með gæðavottun ÍSÍ.

Gullheiðursmerki Keflavíkur  var veitt Ragnari Erni Péturssyni og Ellerti Eiríkssyni. Því miður gátu þeir ekki verið viðstaddir vegna veikinda en fundurinn sendir þeim bestu batakveðjur um leið og þeim er óskað til hamingju með þennan heiður.

Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ sæmdi Einar Helga Aðalbjörnsson og
Odd Sæmundsson starfsmerki UMFÍ.

Starfsbikar félagsins var veittur Ólafi S. Guðmundssyni. 

Rekstur félagsins er góður og er rekstrar niðurstaðan jákvæð. Stjórnir deilda félagsins eiga mikið hrós skilið fyrir gott starf og góða stjórnun á  fjármálum deilda.

Starfsmerki Keflavíkur fyrir stjórnarsetu voru veitt að aðalfundum deilda.
Gullmerki: Þorsteinn Magnússon knattspyrnudeild.
Silfurmerki : Ásdís Júlíusdóttir badminton, Halldóra B. Guðmundsdóttir fimleikum, Júlíus Friðriksson sund-fimleikum og Hjördís Baldursdóttir knattspyrnu.
Bronsmerki: Guðný Magnúsdóttir og Hilmar Örn Jónasson sund, Jónas Andrésson skot, Margeir Einar Margeirsson körfu, Mikael Þór Halldórsson taekwondo og Gunnlaugur Kárason fimleikadeild. 


Hér má nálgast skýrslu og reikninga 2015

Hér má nálgast myndir frá aðalfundinum

 

Einar Haraldsson formaður Keflavíkur.