Fréttir

Aðalfundarboð deilda Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags 2021
Aðalstjórn | 11. janúar 2021

Aðalfundarboð deilda Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags 2021



AÐALFUNDIR DEILDA KEFLAVÍKUR ÁRIÐ 2021

 

Deild                                         Dagsetning             Tímasetning        Staðsetning

 

Badmintondeild                 mánudaginn 18.          janúar kl. 20,00  Sunnubraut 34

 

Taekwondo               þriðjudaginn 19.           janúar kl. 20,00  Sunnubraut 34

 

Skotdeild                   miðvikudaginn 20.        janúar kl. 20,00  Sunnubraut 34

 

Blakdeild                    fimmtudaginn 21.                  janúar kl. 20,00  Sunnubraut 34

 

Sunddeild                  mánudaginn 25.            janúar kl. 20,00  Sunnubraut 34

 

Körfuknattleiksdeild þriðjudaginn 26.           janúar kl. 20,00  Sunnubraut 34

 

Fimleikadeild            miðvikudaginn 27.        janúar kl. 19,00  Akademíunni

 

Rafíþróttadeild          laugardaginn 30.           janúar kl. 14,00  Sunnubraut 34

 

Knattspyrnudeild      mánudaginn 1.              febrúar kl. 20,00 Sunnubraut 34


Einar Haraldsson formaður Keflavíkur

Úr lögum félagsins varðandi aðalfundi deilda.     

 

Aðalfundir deilda.

20. gr.

Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar.

21. gr.

Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri  hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega á heimasíðu félagsins. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.

22. gr.

Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:

1. Fundarsetning.

2.    a) Kosinn fundarstjóri

b) Kosinn fundarritari.

3. Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.

4. Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.

5. Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.

6. Ávörp gesta.

7. Kosningar:

a) Kosinn formaður til eins árs.

b) Kosnir 2 meðstjórnendur til tveggja ára.

c) Kosnir 3 menn í varastjórn.

d) Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.

e) Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.

8. Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.

9. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

10. Önnur mál.

11. Fundi slitið.

Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund deildarinnar.

23. gr. 

Á aðalfundi deildar ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála. Kosning deildarstjórnar skal vera skrifleg ef þess er óskað. Ef atkvæði eru jöfn skal kosið að nýju, bundinni kosningu. Verði þá atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.