Fréttir

Aðalstjórn | 27. maí 2026

Nýr fjármálastjóri tekur til starfa

Erla María Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Keflavíkur.  Hún tekur við af Guðbjörgu Björnsdóttur sem hefur gegnt starfinu frá því í nóvember 2023 og hverfur nú til annarar starfa.

Erla María er félaginu kunn og hefur alið börnin sín upp í íþróttum innan Keflavíkur.  Hún er viðskiptafræðingur að mennt og hefur góða reynslu af rekstri.

Við bjóðum Erlu Maríu velkomna til starfa hjá Keflavík.

Guðbjörg lætur af störfum um næstu mánaðarmót og viljum við þakka henni fyrir frábær störf hjá Keflavík og óskum henni góðs gengis í nýju starfi.

 

Myndasafn