Fréttir

Aðalstjórn | 30. mars 2026

Frábærir Íslandsleikar að baki

Um helgina fóru fram ALLIR MEÐ Íslandsleikar í Keflavík þar sem keppt var í körfubolta, handbolta og fótbolta.  Keppt var í Bluehöllinni í handbolta og körfubolta og í Nettóhöllinni í fótbolta.
Stemningin var geggjuð allan tímann og fullt af flottum tilþrifum frá keppendum.
Það var gaman að sjá hversu mikill metnaður, liðsheild og gleði einkenndi alla sem tóku þátt.  
Það voru ótalmargir iðkendur og þjálfarar hjá Keflavík sem tóku þátt í þessu með Keflavík og eiga þau margfaldar þakkir skilið  fyrir að koma, æfa, dæma og keppa með krökkunum.
Takk fyrir frábæra helgi, svona viðburðir sýna hvað íþróttir sameina okkur öll !! 

 

Myndasafn