Fréttir

Aðalstjórn | 22. mars 2024

Bikarinn framundan

Keflavík – félagið okkar

Laugardagurinn 23. mars er stór dagur hjá okkur Keflvíkingum.  Bæði liðin okkar  í meistaraflokki körfunnar leika til úrslita í Bikarkeppni KKÍ.  Slíkt hefur ekki gerst síðan 2004 eða í 20 ár en þá vann Keflavík tvöfalt.  Keflavík er nú að jafna met KR sem hefur líka 7 sinnum átt bæði lið í bikarúrslitum á sama ári.  Aðeins 2 önnur félög hafa unnið tvöfalt (KR 1977 og ÍS 1978).  Keflavík er eina félagið sem hefur gert það oftar en einu sinni og Keflavík á nú möguleika á að vinna báða bikarana í 5. sinn.

Við sem Keflvíkingar ætlum að fjölmenna í höllina á laugardaginn og styðja okkar lið til sigurs.  Félagsvitund er mikilvæg.  Að vera hluti af félagi er gott fyrir alla og svona stór viðburður er góður vettvangur til að efla félagsvitund.  Ég hvet alla Keflvíkinga til að mæta og sérstaklega foreldra barna sem æfa íþróttir með Keflavík að koma með börnin í Höllina. Þetta er mikil skemmtun og stór upplifun fyrir börnin að sjá að við erum stór, sameinuð og við hvetjum okkar lið saman.  Þarna horfa þau á sínar fyrirmyndir sem hvetur þau til dáða að ná árangri sjálf í íþróttum.

Við erum að skrifa söguna og ætlum að halda því áfram. 

Hlakka til að sjá ykkur í Höllinni,

 

ÁFRAM KEFLAVÍK

 

Björg Hafsteinsdóttir

Formaður