Fréttir

ÍRB með 8 af 11 þeirra sem náðu lágmörkum í unglingalandslið
Sund | 15. apríl 2014

ÍRB með 8 af 11 þeirra sem náðu lágmörkum í unglingalandslið

Nú er lágmarkatímabili fyrir landsliðsverkefni sumarsins lokið og við erum glöð að tilkynna að 8 sundmenn hafa náð lágmörkum í landsliðsverkefni. ÍRB er með 8 af 11 sundmönnum sem náð hafa lágmörkunum. 

Þau sem hafa náð lágmörkum fyrir Evrópumeistaramót unglinga (EMU) eru: Íris Ósk Hilmarsdóttir, Sunneva Dögg Friðriksdóttir, Sylwia Sienkiewicz og Þröstur Bjarnason. Auk þess náðu þau öll B-lágmörkum á Ólympíuleika ungmenna (YOG).

 

Þau sem hafa náð lágmörkum fyrir Norðurlandameistaramót Æskunnar (NÆM) eru: Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir og Stefanía Sigurþórsdóttir.