Fréttir

Góð byrjun á ÍM50
Sund | 23. apríl 2016

Góð byrjun á ÍM50

ÍM 50 2016 fer afar vel af stað hjá okkar fólki í ÍRB. Fyrsti mótsdagur gekk vel og er stúlknamet, lágmark á EMU og tveir íslandsmeistaratitlar komin í hús !
 
Tveir íslandsmeistaratitlar, ein silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun í einstaklingsgreinum ásamt silfurverðlaunum í 4 x 200m skriðsundi karla og bronsverðlaun í 4 x 200m skriðsundi kvenna var uppskeran á fyrsta degi ÍM 50. Margar og flottar bætingar í dag ásamt góðum sundum sem voru nálægt besta tíma. 
 
Fyrsta titlinum í dag náði Sunneva Dögg Friðriksdóttir með frábæru sundi í 400m skriðsundi á tímanum 4,20,66 þar sem hún slátraði stúlknametinu í greininni (4,23,24) og var eingöngu 2/10 frá íslandsmeti kvenna (4.20,44). Vel gert Sunneva :)
 
Þröstur Bjarnason bætti síðan við seinni titli dagsins með geggjuðu sundi í 400m skriðsundi, þar sem hann hækkaði verulega blóðþrýstinginn hjá þjálfaranum sínum. Hann synti á 4,08,95 og náði lágmörkum á EMU. Sundið útfærði hann þannig að hann synti fyrri 200 á 2,06,63 og seinni 200 á 2,02,32 og stakk alla af. Vel gert Þröstur :)
 
Aðrir sem unnu verðlaun í dag voru: Eydís Ósk Kolbeinsdóttir brons í 400m skriðsundi, Karen Mist Arngeirsdóttir silfur í 100m bringusundi og Baldvin Sigmarsson brons í 100m bringusundi.
Mikil liðsheild, gleði og samheldni ríkir í hópnum.
 
Undanúrslitahlutinn í morgun gekk vel og alls synda 13 sundmenn í úrslitum eftir hádegi :)

Úrslitin byrja 16:30. Áfram ÍRB!