Fréttir

Foreldrafundur 22. apríl vegna Landsbankamóts
Sund | 19. apríl 2014

Foreldrafundur 22. apríl vegna Landsbankamóts

Landsbankamót ÍRB verður haldið 9.-11. maí. Þetta mót er eitt það
stærsta á árinu og til að geta haldið svona stórt mót þurfa allir
foreldrar sundmanna í ÍRB að taka höndum saman og leggja sitt af
mörkum.

Við bjóðum liðunum sem sækja okkur heim upp á mat, gistingu, sjoppu og
bíó og í tengslum við mótið verður líka okkar árlega lokahóf haldið í
FS og því mikið um að vera.

Allir geta lagt hönd á plóginn þar sem störfin eru fjölbreytt. Þetta
er eina mótið þar sem við óskum eftir að allir foreldrar gerist
sjálfboðaliðar og leggi vinnu af mörkum fyrir félagið og vonum við að
allir taki enn og aftur vel í þessa beiðni okkar.

Þriðjudaginn 22. apríl kl. 19:30 í  íþróttahúsinu við Sunnubraut verður foreldrafundur vegna mótsins.
Þar verður farið yfir hvaða störf eru í boði og tímasetningar.

Mjög mikilvægt er að hver og einn sundmaður í ÍRB eigi fulltrúa á fundinum.

Einnig verður ÍRB fatnaður  til sýnis á fundinum, það sem til er á lager verður til sölu og ef eitthvað vantar sem ekki er til verður tekið við pöntunum.