Fréttir

Eva Margrét með meyjarmet á RIG
Sund | 30. janúar 2017

Eva Margrét með meyjarmet á RIG

Eva Margrét Falsdóttir setti  nýtt íslenskt meyjamet í 100 metra bringusundi á RIG þegar hún synti á 1.22.93. Hér er hún á mynd frá mótinu með íslandsmethafanum í fullorðinsflokki Hrafnhildi Lúthersdóttur. Innilega til hamingju með glæsilegan árangur Eva Margrét Falsdóttir.

 
Sundmenn úr Framtíðarhóp kepptu alla þrjá dagana á RIG og voru með flottan árangur á mótinu. Afrekshópur sem var nýkomin frá keppni af Lyngby Open keppti eingöngu á laugardeginum og kepptu þau í fáum greinum, og sumir í greinum sem þau keppa sjaldan í. Góðar bætingar voru nokkrum greinum og sterk sund í með verðlaunum úrslitunum á laugardeginum.