Fréttir

Æfingadagur fyrir Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska
Sund | 16. september 2014

Æfingadagur fyrir Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska

Æfingardagur fyrir Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska verður næsta laugardag kl. 15-17 í Vatnaveröld. Þessi æfingadagur er skipulagður með það í huga að hjálpa yngstu sundmönnunum að undirbúa sig fyrir Ármannsmótið sem verður helgina á eftir. Sundmenn þurfa að vera tilbúnir og komnir í sundföt kl. 15:00 svo mælt er með því að mæta kl. 14:40.

Allir sem ætla að keppa á Ármannsmótinu ættu að taka þátt til þess að öðlast meira öryggi í stóru lauginni (25 metra laug).

Nauðsynlegt að hafa sundgleraugu og sundhettu með sér. Á æfingunni verða ýmis tækniatriði æfð undir stjórn yfirþjálfara og með þjálfurum yngri hópa. Æfingadagurinn endar svo á leikjum sem styrkja liðsandann. Sjáumst öll á laugardaginn!