Fréttir

Keflavik Open 3-4 júní
Skotdeild | 26. maí 2017

Keflavik Open 3-4 júní

Keflavík Open /Hafnir -open verður haldið helgina 3-4 júní í SKEET.

Þeir keppendur sem ætla að skrá sig senda inn skráningu á sína formenn í sínu Skotfélagi/deild sem fyrst því þeir þurfa að skila inn skráningunni fyrir miðnætti á þriðjudaginn 30. maí til Stí í tölvupóstformi.

Keppt er í flokkum og skal skila inn skráningu með nafni, fæðingarári og flokk hjá viðkomandi.

Keppni hefst kl. 10:00 og er mæting ekki seinna en hálftíma fyrir sinn riðil eða þá 09:30 fyrir þá í fyrsta riðli. Skotinir verða 3 hringir eða 75 dúfur fyrri daginn og 2 hringir eða 50 dúfur og svo final.

Final að þessu sinni er breyttur síðan í fyrra, en það gengur þannig fyrir sig að sex efstu menn fara í úrslit og skjóta 10x double á palli 3,4 og 5. Sá sem er neðstur eftir þá rimmu dettur út. Svo er skotið á 5x double dúfur og sá neðsti dettur út, þannig er svo haldið áfram þar til einn stendur eftir.

Ef þú ert tilbúinn að koma og aðstoað við mótahaldið máttu senda tölvupóst á skot@keflavik.is

Kveðja Stjórn Skotdeildar Keflavíkur.