Fréttir

Úrslitaleikur gegn ÍR í Lengjubikarnum
Knattspyrna | 24. apríl 2016

Úrslitaleikur gegn ÍR í Lengjubikarnum

Það verður sannkallaður stórleikur í Reykjaneshöll í kvöld. Keflavíkurstúlkur taka þá á móti ÍR í C-deild Lengjubikarsins. Um er að ræð úrslitaleik í riðlinum, liðið sem sigrar fer í undanúrslit, hitt liðið situr eftir. Bæði lið hafa verið að spila vel í vetur og má því búast við skemmtilegum og spennandi leik.

Fólk er hvatt til að koma við í Reykjaneshöll, leikurinn hefst kl. 19:00.

Staðan í riðlinum