Fréttir

Tveir leikir á laugardag
Knattspyrna | 30. janúar 2015

Tveir leikir á laugardag

Karla- og kvennalið Keflavíkur eiga bæði leik á laugardaginn og þeir fara báðir fram í Reykjaneshöllinni.

Fyrri leikurinn er fyrir hádegi en kl. 10:30 taka strákarnir á móti FH.  Þetta er leikur um 3. sæti í Fótbolta.net-mótinu en þessi lið enduðu í 2. sæti í sitt hvorum riðlinum í mótinu.  Dómari í þessum leik veðrur Pétur Guðmundsson og aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Andri Vigfússon.

Kl. 14:00 er svo komið að leik í Faxaflóamóti kvenna en þá mætast Keflavík og Víkingur Ólafsvík.  Okkar stelpur hafa þegar leikið tvo leiki í riðlinum en þetta er fyrsti leikur Ólsara.

Við hvetjum að sjálfsögðu Keflvíkinga til að mæta og styðja okkar fólk.