Fréttir

Sumaræfingar 8. flokks
Knattspyrna | 11. maí 2018

Sumaræfingar 8. flokks

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast miðvikudaginn 6. júní.

Skráning:  Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2012, 2013 og 2014.

Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:10 – 17:10.

Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á tvö námskeið.

  • Námskeið 1:
    • 6. júní – 25. júní (11 æfingar)
  • Námskeið 2:
    • 28. júní – 17. júlí (11 æfingar)
  • Tvær “aukaæfingar” verða 8. og 9. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 13 æfingar).
  • Æfingastaður:  Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
  • Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Verð: 10.000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 6000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Mót: Farið verður á Arion bankamót Víkings, helgina 11. – 12. ágúst (spilað annan hvorn daginn).

Þjálfarar: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur og Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur, auk aðstoðar frá unglingum úr vinnuskólanum.

Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is