Fréttir

Sindri framlengir
Knattspyrna | 26. febrúar 2015

Sindri framlengir

Sindri Kristinn Ólafsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík og gildir samningur hans nú til ársloka 2017.  Þetta eru ánægjulegar fréttir enda er Sindri án efa einn efnilegasti markvörður landsins.

Sindri er fæddur árið 1997 og er nýorðinn 18 ára.  Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar öðlast nokkra reynslu með meistaraflokki og lék m.a. tvo leiki í Pepsi-deildinni síðasta sumar.  Sindri á einn leik að baki með U-19 ára landsliðinu og hafði áður leikið með U-17 ára liðinu.