Fréttir

Sigmar Ingi markmannþjálfari
Knattspyrna | 11. nóvember 2015

Sigmar Ingi markmannþjálfari

Sigmar Ingi Sigurðarson hefur verið ráðinn markmannsþjálfari hjá Keflavík. Hann mun sjá um þjálfun markvarða hjá meistaraflokki og 2. flokki karla og kvenna.  Sigmar er 32 ára gamall og gekk til liðs við Keflavík frá Fram í sumar en hann hefur einnig leikið með Breiðabliki, Haukum, ÍH og Hvöt.

Við bjóðum Sigmar Inga velkominn til starfa.

Á myndinni með fréttinni eru Jón Benediktsson formaður Knattspyrnudeildar og Sigmar Ingi.