Fréttir

Samstarf við United Silicon
Knattspyrna | 28. febrúar 2015

Samstarf við United Silicon

Knattspyrnudeild Keflavíkur og United Silicon hafa gert með sér samstarfssamning sem gerir United Silicon að einum af okkar allara stærstu samstarfsaðilum. Samningurinn sem var undirritaður í dag er til tveggja ára til að byrja með og munu knattspyrnuáhugamenn sjá merki USi á öllum keppnisbúningum deildarinnar.

United Silicon hefur verið að byggja kísliverksmiðju sína í Helguvík og eru framkvæmdir vel á veg komnar.  Þær hafa staðið yfir frá því í ágúst 2014 og stefnt er að því að hefja framleiðslu á kísil í maí 2016.  United Silicon er að stórum hluta í eigu Íslendinga og finnst þeim mjög mikilvægt að fyrirtækið taki þátt í samfélaginu í Reykjanesbæ og einnig að styðja við það öfluga barna- og unglingastarf sem unnið er í Keflavík.

Knattspyrnudeildin er gríðarlega ánægð með að fá svona stóran og sterkan samstarfsaðila sem United Silicon er en fyrirtækið hugsar sér að eiga langtíma samstarf með knattspyrnudeildinni.

Á myndinni fyrir ofan eru Magnús Garðarsson framkvæmdastjóri USi og Rut Ragnarsdóttir skrifstofustjóri ásamt Þorsteini Magnússyni, Kjartani Steinarssyni og Einari H. Aðalbjörnssyni úr stjórn Knattspyrnudeildarinnar.  Á neðri myndinni skrifa þeir Þorsteinn og Magnús undir samninginn.

Myndir: Jón Örvar Arason