Fréttir

Reynsluboltar framlengja
Knattspyrna | 16. október 2014

Reynsluboltar framlengja

Þrír af reyndustu leikmönnum okkar hafa skrifað undir nýja samninga við félagið en það eru þeir Hörður Sveinsson, Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Sverrir Þorsteinsson.  Jóhann samdi til eins árs en Hörður og Magnús gerðu samning til tveggja ára.  Það þarf ekki að taka fram að þessir piltar eiga að baka langan og farsælan feril hjá Keflavík en þess má geta að saman hafa þeir leikið 36 keppnistímabil með liðinu og eiga alls 546 deildarleiki og 139 mörk fyrir félagið.

Knattspyrnudeildin vill lýsa ánægju sinni með það að þessir öflugu Keflvíkingar spili áfram fyrir liðið okkar.