Fréttir

Nýr aðstoðarþjálfari og styrktarþjálfari hjá 2 flokki karla.
Knattspyrna | 22. nóvember 2017

Nýr aðstoðarþjálfari og styrktarþjálfari hjá 2 flokki karla.

Alexander Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari og styrktarþjálfari hjá 2. flokki karla til næstu tveggja ára.

Alexander er fyrrum leikmaður meistaraflokks karla og var gríðarlega efnilegur ungur leikmaður. Því miður glímdi Alexander við erfið meiðsli sem urðu til þess að hann þurfti að hætta sem leikmaður, aðeins 28 ára gamall.

Knattspyrnudeild Keflavíkur er gríðarlega ánægð með þetta skref og við hlökkum til að sjá ungu strákana í 2. flokki taka framförum í vetur og á komandi misserum.