Fréttir

Naumt tap hjá stelpunum gegn Fjölni
Knattspyrna | 17. apríl 2016

Naumt tap hjá stelpunum gegn Fjölni

Keflavíkurstelpurnar töpuðu sínum fyrstu stigum í Lengjubikarnum í ár er þær biðu lægri hlut gegn Fjölni á föstudagskvöld í Egilshöll. Fjölnisstúlkur byrjuðu með miklum látum og voru komnar í 2-0 eftir 17 mínútna leik. Anita Lind Daníelsdóttir minnkaði muninn rétt fyrir hálfleik með þrumufleyg úr aukaspyrnu. Í seinni hálfleik var hart barist á báða bóga en hvorugu liðinu tókst að setja mark og lokatölur því 2-1 fyrir Fjölni.

Leikskýrsla úr leiknum

Markið glæsilega sem Anita Lind skoraði beint úr aukaspyrnu:
Sjónarhorn 1 
Sjónarhorn 2


Byrjunarliðið gegn Fjölni, myndina tók Jón Örvar Arason.
Efri röð frá vinstri: Una Margrét, Kristrún Ýr, Guðrún Lísa, Katla María, Sveindís Jane, Brynja.
Neðri röð frá vinstri: Eva Lind, Ljiridona, Auður Erla, Anita Lind, Arndís Snjólaug.