Fréttir

Minningarmót Ragnars Margeirssonar á laugardaginn
Knattspyrna | 24. febrúar 2017

Minningarmót Ragnars Margeirssonar á laugardaginn

Hið árlega minningarmót um Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram, verður haldið í Reykjaneshöll laugardaginn 25. febrúar. Mót þetta hefur verið vel sótt undanfarin ár og mikil ánægja verið á meðal eldri drengja, sem hafa sótt mótið. Aðstandendur viðburðarins, sem kalla sig „vinir Ragga Margeirs“ hafa tekið upp þann sið að safna fé og láta afraksturinn ganga til góðs málefnis.

Þetta verður í þrettánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar, fyrrverandi knattspyrnusnillings, en hann lést langt fyrir aldur fram í febrúar á árinu 2002.

Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni á laugardaginn og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga saman góða stund. Mótið hefst kl. 15:30 og lýkur um kl. 18:30.

- Leikið verður á 3 litlum völlum (50 x 32).
- Leikmannafjöldi: 6 í liði (5 útileikmenn og markvörður)
- Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar

Þeir sem vilja láta fé af hendi rakna af þessu tilefni og styrkja gott málefni, geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 121-05-10026, kt. 180161-4229.

HÉR má nálgast leikjadagskrá mótsins

Með boltakveðju
Vinir Ragga Margeirs