Fréttir

Lengjubikarinn framundan
Knattspyrna | 12. febrúar 2016

Lengjubikarinn framundan

Þá er komið að næsta móti á hinu margfræga undirbúningstímabili en það er Lengjubikarinn.  Okkar menn hefja leik þar á sunnudaginn þegar lið ÍBV mætir í Reykjaneshöllina.  Þar verður flautað til leiks kl. 14:00 og við hvetjum að sjálfsögðu stuðningsmenn til að mæta og styðja strákana.

Keflavík leikur í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins þetta árið.  Önnur lið í riðlinum eru Fram, Huginn, ÍBV, Stjarnan og Valur.  Alls eru riðlarnir fjórir en tvö efstu lið í hverjum riðli tryggja sér sæti í 8 liða úrslitum.

Hér eru leikir Keflavíkur í Lengjubikarnum.

14. feb Lengjubikarinn Keflavík - ÍBV Reykjaneshöllin kl. 14:00
19. feb Lengjubikarinn Keflavík - Stjarnan Reykjaneshöllin kl. 20:30
  4. mars Lengjubikarinn Valur - Keflavík Egilshöll kl. 19:00
18. mars Lengjubikarinn Fram - Keflavík Egilshöll kl. 19:00
  1. apríl Lengjubikarinn Keflavík - Huginn Reykjaneshöllin kl. 20:30